HeimFréttir og greinarTilboðsverð á bók um Oddarannsóknina

Tilboðsverð á bók um Oddarannsóknina

Uppskera fimm ára rannsókna á sagnfræði, bókmenntun og fornleifum í Odda er hér lögð fram í glæsilegu riti með fjölda nýrra greina um Odda og Oddaverja á miðöldum.

Oddi á Rangárvöllum – Þættir úr sögu höfuðbóls, í ritstjórn Kristborgar Þórsdóttur verður gefin út af Hinu Íslenska bókmenntafélagi.

Í ritinu eru 44 greinar eftir 22 höfunda og efninu er skipt upp í 17 kafla. Höfundar hafa ólíkan fræðilegan bakgrunn, sumir eru að stíga sín fyrstu skref á fræðasviðinu en aðrir hafa stundað rannsóknir í áratugi. Greinarnar eru sprottnar upp úr rannsóknum stjórnenda Oddarannsóknarinnar og nemendaverkefnum í tengslum við hana en margar greinar eru eftir aðra fræðimenn sem tengst hafa verkefninu á einhvern hátt, meðal annars með þátttöku á málþingum Oddafélagsins á rannsóknartímanum.

Í bókinni er miklum fróðleik um Odda og Oddaverja safnað saman á einn stað og efni bókarinnar er afar fjölbreytt. Varpað er ljósi á miðaldasamfélag á Íslandi, deilur um yfirráð kirkjustaða, helstu persónur og leikendur, einkum Oddaverja, menntir og bókmenningu, en líka umhverfi og efnahagslegar undirstöður höfuðbólsins í Odda.

Mikil áhersla er lögð á fjölbreytt myndefni og kemur það m.a. frá Árnastofnun á Íslandi og í Danmörku, Þjóðminjasafni og byggðasöfnum og frá fólki úr héraði. Blær Guðmundsdóttir sér um hönnun bókarinnar og umbrot. Þetta er vandaður og fagur prentgripur í harðspjalda kápu og til dæmis tilvalin sem útskriftargjöf eða stórafmælisgjöf.

Tilboðsverð í forsölu er aðeins kr. 5.900, en fullt verð er kr. 7.900.

Sendið nafn og netfang ásamt eintakafjölda sem óskað er eftir á netfangið: ritstjori@oddafelagid.is

Bók á ensku verður einnig gefin út um niðurstöður Oddarannsóknina, Medieval Oddi in Iceland as a Place of Power and Learning, í ritstjórn Helga Þorlákssonar, og verður gefin út af Brill útgáfunni í Hollandi. Nánari upplýsingar um forsölu á henni verða birtar síðar.

spot_img

MEST LESIÐ:

Styrkur í Sæmundarsjóð

Í dag færðu þau Sigríður Dúna Kristmundsdóttir og Friðrik Sophusson Oddafélaginu fjárstyrk til uppbyggingar í Odda.