HeimFréttir og greinarFjörug og fróðleg Oddastefna

Fjörug og fróðleg Oddastefna

Tvær bækur um Oddarannsóknina eru væntanlegar á árinu: „Medieval Oddi in Iceland as a Place of Power and Learning,“ í ritstjórn Helga Þorlákssonar, og „Oddi á Rangárvöllum - Þættir úr sögu höfuðbóls,“ í ritstjórn Kristborgar Þórsdóttur.

Óhætt er að segja að fyrir utan fyrirlesara á Oddastefnu, Helga Þorláksson, Kristborgu Þórsdóttur, Björn Bjarnason og Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur, hafi Hafsteinn Þórólfsson og Björk Níelsdóttir, í hlutverkum Sæmundar fróða og Kölska, slegið hressilega í gegn með atriðum úr óperunni Sæmundur fróði eftir Þórunni Guðmundsdóttur, við undirleik Sólveigar Sigurðardóttur.

„Medieval Oddi in Iceland as a Place of Power and Learning,“ í ritstjórn Helga Þorlákssonar, kemur út síðar á árinu á vegum Brill útgáfunnar í Englandi, og bókin „Oddi á Rangárvöllum – Þættir úr sögu höfuðbóls,“ í ritstjórn Kristborgar Þórsdóttur er gefin út af Hinu Íslenska bókmenntafélagi.

Báðar bækurnar innihalda greinar eftir fjölda fræðimanna sem komu að sagnfræði-, bókmennta- og fornleifahluta Oddarannsóknarinnar síðastliðin fimm ár. Hér er nýju ljósi varpað á marga hluti sem áður voru huldir myrkri og getgátum. Bækurnar eru því hafsjór af nýjum fróðleik um sögu Odda og Oddaverja á miðöldum.

 

spot_img

MEST LESIÐ:

Oddastefna í Gunnarsholti 30. maí kl. 13

Lok Oddarannsóknarinnar eftir fimm ára starf verða kynnt og flutt verða atriði úr óperunni Sæmundur fróði með Animiato óperuhópnum.

Ópera um Sæmund og Kölska

Sviðslistahópurinn Animato í Tjarnarbíói 1. apríl

Sögusýningin rís úr jörðu

„Og samt þú svafst of lengi, ó sögustóra fold! Eg vil, en vantar strengi, að vekja þig úr mold.“ M.J.

Sr. Geir og frú Dagný heiðruð í Reykholti

Sóknarnefnd og söfnuður Reykholtsprestakalls bauð þeim heiðurshjónum, sr. Geir Waage og frú Dagnýju Emilsdóttur, til hátíðardagskrár í Reykholti þar sem þeim var þakkað fyrir...