Ekra - vinnustofa og gisting

Langekra var ein af hjáleigum Oddastaðar og síðar sjálfstæð bújörð. Þegar síðustu ábúendur brugðu búi fékk Oddafélagið bæjarhúsið til afnota og hefur unnið að endurnýjun þess í þeim tilgangi að skapa aðstöðu fyrir félagið og ýmsa starfsemi á vegum þess.

Frá því að fornleifauppgröftur hófst í Odda 2018 hafa fornleifafræðingar haft gistiaðstöðu í Ekru og aðstöðu fyrir ýmsan búnað í gömlu hlöðunni.

Hugmyndin er sú að í Ekru verði einnig vinnustofa með gistingu fyrir fræðimenn, sem vilja njóta næðis og kyrrðar við eitt sögufrægasta höfuðból Suðurlands.

Oddafélagið hefur fundaraðstöðu í stofunni sem nefnd er Freysteinsstofa til minningar um Freystein Sigurðsson jarðfræðing. Þar er bókagjöf Freysteins til Oddafélagsins en hann gerðist öflugur liðsmaður félagsins fyrsta árið og var í stjórn þess frá 1991 til dauðadags, 29. desember 2008.

Með framkvæmdum í Ekru vill Oddafélagið einnig búa til svolitla móttöku og kaffihús fyrir gesti sem heimsækja Oddastað til að kynna sér fornleifauppgröftinn eða aðra starfsemi á vegum félagsins.