HeimFréttir og greinarSögusýningin í Odda loks tilbúin

Sögusýningin í Odda loks tilbúin

Að vekja úr mold hina sögustóru fold var ósk séra Matthíasar Jochumssonar þegar hann var prestur í Odda. Þá ósk hefur félagið lagt sig fram um að láta rætast með þessari veglegu sögusýningu, „Sæmundur fróði og saga Odda 930-1305.“

Síðastliðinn vetur gerðust Oddfellowbúðir nr. 6, ODDI I.O.O.F., sérstakir styrktaraðilar Sögusýningarinnar í Odda. Þessi hrausta sveit vaskra manna undir forystu Kristjáns Óla Hjaltasonar tóku upp á arma sína þann framkvæmdahluta verksins sem gerði mestar kröfur um skipulag, verkkunnáttu og fagmennsku: að hanna og setja saman skiltagrindur fyrir skiltaborg sögusýningarinnar, koma þeim á staðinn og reisa þær upp af nákvæmni, sem þeir gerðu á votum júnídegi í sumar.

Lokahnykkur þeirra félaga varð svo miðvikudaginn 28. október þegar þeir mættu snemma dags í Odda að festa sjálf skiltin upp. Þessu til viðbótar smíðaði Kristján Óli tvö borð með áföstum bekkjum fyrir gesti sýningarinnar og færði Oddafélaginu að gjöf í tilefni af verklokum. Það er enginn endir á höfðingsskap þessara heiðursmanna.

 

Sögusýning Oddafélagsins, „Sæmundur fróði og saga Odda 930-1305“ var teiknuð upp á blað fyrir tíu árum af verkefnastjóra Oddafélagsins, í þeim tilgangi að gera hina merku og mikilvægu sögu Odda og Oddaverja á miðöldum sýnilega á staðnum fyrir gesti og gangandi. Það er því langur ferill að baki í þróun, undirbúningi og fjármögnun verkefnisins.

Frá upphafi var framkvæmdinni skipt í nokkra verkþætti. Fyrst var hugmyndavinnan um hvaða atriði úr sögu Oddaverja skyldu valin og hvernig hver mynd fyrir sig yrði uppbyggð. Samhliða voru gerð drög að textanum. Ákveðið var að sýningin yrði á 9 stórum myndaskiltum sem sett yrðu upp í Oddalundi við Oddakirkju, en tvö skilti yrðu sett upp við þjóðveginn til að auglýsa sýninguna. Loks var ákveðið að gera sérstök textaskilti svo minna af texta yrði á myndaskiltunum svo þau mættu njóta sín sem best.

Það tók langan tíma að safna nægu fé svo hægt væri að hefjast handa, en styrktar- og menningarsjóðir voru afar tregir að leggja verkefninu lið. Þó fengust um síðir 600 þúsund kr. frá Uppbyggingarsjóði Suðurlands.

Loks kom þar að fjármunir voru nægir til að hefja ljósmyndatöku með Brynjari Ágústssyni ljósmyndara og Ellu Reynis búningameistara. Þá höfðu verið valdir um 60 sjálfboðaliðar úr héraði og þeim stefnt í myndatöku, sem fram fór í félagsheimilinu Gunnarshólma 3. – 9. september 2023. (sjá færslu frá 11. september 2023)

Að loknum myndatökum tók við stafræn eftirvinnsla ljósmynda, samsetning atriða, lýsing og áferð auk gerð bakgrunna fyrir sum atriðin. Þetta er afar tímafrek nákvæmnisvinna en hér vann Brynjar Ágústsson stórvirki og skilaði sínu með glæsibrag. Með sérstökum stuðningi frá Oddfellowbúðum nr. 6, ODDI, tókst að flýta eftirvinnslu ljósmynda og ljúka því verki um mitt ár 2026.

Á meðan eftirvinnsla ljósmynda var í gangi var hafist handa við að undirbúa Oddalund fyrir sýninguna. Í lundinum voru niðursokknar móhellur sem Þorsteinn í Steinastein byrjaði á að losa upp og hreinsa jarðveg í burtu í janúar á þessu ári. Skömmu síðar komu menn Ólafs Einarssonar í Þjótanda með trukkana fulla af möl úr námu Vindáss. Þar með var göngurampur og torg fyrir skiltaborgina að taka á sig mynd.

Í byrjun júní var hafist handa við að grafa fyrir steypuhólkum og koma þeim fyrir á réttum stað, en vélsmiðjan Magni ehf. hafði tekið frá stórar tunnur handa félaginu í þessum tilgangi. Þá hafði Kristján Óli keypt stauraefni og var komin langleiðina með að smíða skiltagrindurnar með sínum mönnum við verkstæði sitt í Hafnarfirði. Skiltagrindurnar voru svo fluttar á staðinn, grindunum stillt upp af nákvæmni og stífaðar af. Lárus í Spesíunni kom skömmu síðar með steypubílinn og fyllti steypuhólkana.

Rangárþing eystra gaf Oddafélaginu Ecoraster mottur fyrir göngustíginn og torgið, sem Þorsteinn í Steinastein lagði af fagmennsku og snilld. Þá kom Ólafur í Þjótanda enn og aftur færandi hendi og gaf félaginu fíngerða möl til að bera ofan í motturnar. Þar með var allt komið á sinn stað og lundurinn tilbúinn fyrir uppsetningu sýningarinnar.

Þegar eftirvinnslu ljósmynda var lokið tók Ámundi Sigurðsson, grafískur hönnuður við ljósmyndunum, setti texta inn á myndaskiltin og hannaði textaskiltin sem fest eru fyrir neðan hverja mynd. Hvort tveggja var sent í skiltagerðina Fagform á Selfossi, sem prentaði mynda- og textaskilti og límdi á álplötur frá ÞH-blikk á Selfossi. Valur Stefánsson í Fagform og Þröstur Hafsteinsson í ÞH-blikk gáfu allt efni og vinnu við framleiðslu skiltanna.

Það er óhætt að segja að án aðkomu þessara öflugu heiðursmanna í Oddfellowreglunni væri þetta stóra og mikilvæga verkefni enn á byrjunarreit. Sá mikli stuðningur sem félagið hefur einnig notið frá fyrirtækjum í Rangárþingi og á Selfossi er sömuleiðis ómetanlegur. Stjórn Oddafélagsins þakkar öllum þessum aðilum fyrir styrki þeirra og stuðning svo sögusýningin mætti verða að veruleika: Þorsteini í Steinastein ehf., Fjölskyldunni Vindási, Ólafi og Steinunni Birnu í Þjótanda ehf., Lárusi í Spesíunni ehf., Guðmundi og Írisi í vélsmiðjunni Magna ehf., Sveitarstjórum Rangárþings eystra og Rangárþings ytra, Vali í Fagform ehf, Þresti í ÞH-blikk ehf., sjálfboðaliðum í héraði sem gengu í hlutverk Oddaverja og síðast en ekki síst félögum í Oddfellowbúðum nr. 6 ODDI.

Á meðfylgjandi myndum má sjá þá heiðursmenn að störfum: Kristján Óla Hjaltason, Heimi Sæberg Loftsson, Jóhannes Harðarson, Guðjón Guðmundsson, Kristján Ármannsson, Kára Helgason, Helga Hermannsson, Pál Briem Magnússon og loks Gísla Sigmundsson, sem stýrði framkvæmdum og hafði síðasta orðið um öll atriði – og tók léttan dans með verkefnastjóra Oddafélagsins að verki loknu.

Ekki má gleyma þætti Vegagerðarinnar, sem í sumar lagfærði og breikkaði aðkomu að Oddavegi frá þjóðvegi 1 og bætti við góðri aðrein vestanmegin. Auk þess voru gerð tvö ný vegaskilti fyrir Odda, hvít og rauð með tákni fyrir „áhugaverður staður“. Svanur G. Bjarnason svæðisstjóri á Suðursvæði og hans fólk eiga miklar þakkir skildar fyrir frábæra vinnu.

Það er ómetanlegt fyrir lítið áhugamannafélag með stórar hugsjónir en takmarkað fé að fá svo voldugan stuðning við þetta mikilvæga verkefni, að vekja úr mold hina sögustóru fold; að gera hina merku sögu Odda og Oddaverja á miðöldum sýnilega á staðnum sjálfum og aðgengilega fyrir gesti og gangandi. Nú er er markmiðinu náð og sögusýningin loksins orðin að veruleika.

Formleg opnun sýningarinnar verður laugardaginn 22. maí 2027, en þá verða stóru skiltin tvö við gatnamót þjóðvegar 1 og Oddavegar væntanlega komin upp. En öllum er velkomið að koma að Odda og skoða sýninguna hvenær sem er, enda er Oddalundur nú orðinn hinn þægilegasti áningarstaður.

22. maí er dánardægur Sæmundar fróða, en hann lést árið 1133. Það styttist því óðum í 900 ára ártíð hins mikla lærdómsmanns og því mikið fagnaðarefni að sögusýningin sé nú komin upp og öllum aðgengileg. Enn eru eftir nokkur atriði varðandi uppsetningu skilta við þjóðveg, ýmis konar frágang, lýsingu á skiltum, aðgengismál á bílastæði og fleira.

Þau sem vilja styrkja Oddafélagið sérstaklega vegna sögusýningarinnar er því bent á styrktarreikning félagsins: 0308-22-921. Kennitalan Oddafélagsins er: 690916-0370

spot_img

MEST LESIÐ:

Hugarflug á Oddastefnu 2016

Á Oddastefnu 2016 sem haldin var á Hótel Stracta sl. vor var þátttakendum skipt upp í vinnuhópa með það verkefni að ræða og brjóta heilann um framtíð Oddafélagsins og hvar bæri að leggja helstu áherslur.

Afsláttartilboð gildir til 1. júlí

Glæsileg bók um ritmenningu og völd Oddaverja á miðöldum.

Sögusýningin í Odda loks tilbúin

„Og samt þú svafst of lengi, ó sögustóra fold / ég vil, en vantar strengi, að vekja þig úr mold.“ MJ