Oddafélagið er samtök áhugafólks um endurreisn menningar- og fræðaseturs að Odda á Rangárvöllum. Félagið var stofnað 1. desember 1990.
Helstu markmið félagsins eru að halda á lofti minningu Sæmundar Sigfússonar (1056-1133), stuðla að rannsóknum á ævi hans og verkum; rannsaka og miðla sögu Oddastaðar og niðja Sæmundar, Oddaverja; standa fyrir endurreisn menningar- og fræðaseturs að Odda fyrir almenning og fræðimenn.
Heiðursfélagar Oddafélagsins eru Þórður Tómasson safnvörður í Skógum, Sveinn Runólfsson fyrrverandi landgræðslustjóri í Gunnarsholti og dr. Þór Jakobsson veðurfræðingur og formaður Oddafélagsins frá stofnun þess fram til ársins 2016.
Verndari Oddafélagsins er frú Vigdís Finnbogadóttir.
Stjórn
Eftirtalin skipa stjórn Oddafélagsins (2020-2022):
Ágúst Sigurðsson formaður,
Elína Hrund Kristjánsdóttir ritari,
Elvar Eyvindsson gjaldkeri,
Bergþóra Þorkelsdóttir,
Friðrik Erlingsson,
Árni Bragason og
Helgi Þorláksson.