Gerast styrktaraðili Oddafélagsins

Ef þú vilt styrkja félagið til góðra verka þá erum við ákaflega þakklát fyrir það.

Félagið stendur að fornleifarannsóknum í Odda, er að byggja upp aðstöðu fyrir vísindafólk í Ekru, rekur Fornleifaskóla unga fólksins og er að undirbúa uppbyggingu menningar- og fræðaseturs, Sæmundarstofu, í Odda. Nánari upplýsingar um verkefni félagsins má finna hér á síðunni undir: VERKEFNIN OKKAR.

Þú getur líka valið að styrkja eitt þessara verkefna sérstaklega og biðjum við þig þá að tilgreina það í pósti til formanns stjórnar.

Ef þú óskar nafnleyndar biðjum við þig að taka það fram í pósti til formanns stjórnar.

Minningargjafir til félagsins birtum við hér á heimasíðunni með þeim hætti sem aðstandendur óska eftir.

Reikningur Oddafélagsins er í Arionbanka á Hellu
og bankaupplýsingar eru hér:

Oddafélagið kt. 690916-0370, bankareikningur: 0308-22-921.

Þú getur einnig sent okkur skilaboð með því að smella á hnappinn: