HeimFréttir og greinarInnslag úr þætti Stöðvar2 um Odda

Innslag úr þætti Stöðvar2 um Odda

Galdramaðurinn í Odda sem færði Íslendingum ritlistina.

Þáttur Kristjáns Más Unnarssonar á Stöð2 „Um land allt“ sem fjallar um Odda í fortíð, nútíð og framtíð, vakti verðskuldaða athygli, enda feykilega vel unnin og efnið sjálft er okkur Rangæingum afar hjartfólgið.
Þátturinn verður endursýndur í dag, sunnudag, kl. 16.20.
Hér fyrir neðan er umfjöllun af visi.is ásamt 9 mínútna innslagi úr þættinum.
Kristján Már Unnarsson skrifar 
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fjallar um Sæmund fróða á Oddahátíð.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fjallar um Sæmund fróða á Oddahátíð. ARNAR HALLDÓRSSON

 

„Skall þar hurð nærri hælum,“ er máltæki rakið til Sæmundur fróða þegar hann yfirgaf Svartaskóla í Frakklandi og járnhurðin skall svo fast aftur á hæla hans að hælbeinin særðust.

Í þættinum Um land allt á Stöð 2 er því velt upp hvaða hlutverki Oddi og Sæmundur gegndu í því að Íslendingar hófu sagnaritun. Á Oddahátíð í sumar fjallaði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um áhrif Sæmundar og hversvegna farið var að tala um hann sem galdramann.

Sæmundur fróði Sigfússon var maður af holdi og blóði, prestur í Odda á Rangárvöllum, talinn fæddur árið 1056 og látinn árið 1133. En hann var einnig þjóðsagnapersóna, sem birtist í styttunni af Sæmundi á selnum framan við Háskóla Íslands. Hún lýsir sögunni af því þegar Sæmundur samdi við Kölska um flytja sig til Íslands, en Kölski brá sér í selslíki og synti með Sæmund á bakinu yfir hafið.

Það er engin tilviljun að Háskóli Íslands hampi Sæmundi fróða.

Friðrik Erlingsson er verkefnastjóri Oddafélagsins. SIGURJÓN ÓLASON

 

„Sæmundur og aðrir af hans kynslóð eru fyrstu mennirnir sem fara út að læra og koma hingað heim með erlenda lærdóma og miðla þeim inn í okkar samfélag og umbreyta því,“ segir Friðrik Erlingsson, verkefnastjóri Oddafélagsins.

En Sæmundur er einnig talinn einn helsti upphafsmaður sagnaritunar Íslendinga.

„Það er vaxandi áhugi á Sæmundi og við höldum að hann hafi verið mjög mikilvægur maður varðandi upphaf menningar,“ segir Þór Jakobsson, fyrsti formaður Oddafélagsins.

Þór Jakobsson, fyrsti formaður Oddafélagsins. ARNAR HALLDÓRSSON

 

„Þetta er skömmu eftir kristnitöku, við lærum að lesa og skrifa. Fólk byrjar að skrifa niður sögurnar sem það hefur, um héruðin, kvæðin, bæði frá Íslandi og Noregi. Allt þetta byrjar hér, ég hef trú á því,“ segir Þór.

„Og kem ég þá aftur af því af hverju við tölum um Sæmund sem galdramann. Ég velti því fyrir mér hvort það tengist hinni róttæku breytingu á tjáningarformi sem hann innleiddi á Íslandi. Hann skrifar bækur og notar stafrófið,“ sagði Katrín.

Afsteypa af styttu Ásmundar Sveinssonar af Sæmundi á selnum er ofan við Oddakirkju. ARNAR HALLDÓRSSON

 

„Nýir miðlar eru nefnilega ekki einkamál okkar sem lifum núna á tímum facebook, twitter, instagram, tik-tok og öllu hinu. Sæmundur var einn af upphafsmönnum þess að nýta nýja miðla til að miðla fróðleik og upplýsingum á elleftu öld.

Við getum vel því fyrir okkur hvar Sæmundur fróði væri í dag, hvort hann myndi fremja galdra sína á tístinu í dag og vera þar frumlegri og skemmtilegri en aðrir á þeim miðli. Sæti bara á kaffihúsi í Reykjavík, þyrfti engin handrit, hefði bara síma og 4G,“ sagði Katrín.

Þátturinn um Odda á Rangárvöllum er endursýndur á Stöð 2 í dag, sunnudag, klukkan 16:20.

Hér má sjá níu mínútna langt myndskeið úr þættinum:

spot_img

MEST LESIÐ:

Rannsóknir í Odda halda áfram

Fornleifastofnun Íslands heldur uppgeftri áfram í Odda í sumar.