HeimFréttir og greinarNýr Goðasteinn

Nýr Goðasteinn

Það eru alltaf menningarsöguleg tíðindi þegar nýr Goðasteinn - héraðsrit Rangæinga - rennur úr prentsmiðju

Að þessu sinni gleðjast ekki hvað síst Oddafélagar en ritið er að hluta helgað Odda á Rangárvöllum og forsíðan skartar nýrri mynd frá Oddastað af styttunni frægu af Sæmundi  á selnum.

Ritstjóri að þessu sinni er Jens Einarsson og gerir hann sögu Odda og mikilvægi þess að halda merki staðarins á lofti að umfjöllunarefni sínu í inngangi. Þar vekur  ritstjórinn máls á því að í Odda eigi Rangæingar hugsanlega stærri fjársjóð en þeir hafi almennt leitt hugann að.

Þá er í þessu hefti Goðasteins áhugaverð grein eftir Friðrik Erlingsson rithöfund sem hann nefnir „Endurreisn Oddastaðar“ – þar kennir svo sannarlega margra forvitnilegra grasa. Rétt er að benda áhugasömum á að hægt er að nálgast eintak af þessu vandaða riti hjá KPMG/Fannberg á Hellu. Hægt er að koma í KPMG/Fannberg að Þrúðvangi, hringja í síma 5456227 eða senda póst á  gtomasdottir@kpmg.is .

spot_img

MEST LESIÐ:

Hinn sagnfræðilegi Sæmundur

Erindi Björns Bjarnasonar á Oddastefnu 30. maí.

Oddastefna í Gunnarsholti 30. maí kl. 13

Lok Oddarannsóknarinnar eftir fimm ára starf verða kynnt og flutt verða atriði úr óperunni Sæmundur fróði með Animiato óperuhópnum.

Fjörug og fróðleg Oddastefna

Það var fjörug stemning í bland við áhugaverðan fróðleik þegar uppskeru Oddarannsóknarinnar var fagnað.

Hinn þjóðfræðilegi Sæmundur og vald þekkingarinnar

Erindi Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur á Oddastefnu 30. maí