HeimFréttir og greinarJarðsjá og drónaflug

Jarðsjá og drónaflug

Föstudaginn 5. ágúst sl. kom Steinunn Kristjánsdóttir prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands ásamt fríðu föruneyti í Odda til að gera fyrstu tilraunir með jarðsjá á Oddastað.

Skoðað var ákveðið svæði í kringum hús í Odda og á plönum. Einnig var farið með jarðsjánna yfir svæði sunnan undir kirkjunni þar sem mikið er af ómerktum leiðum. Þessi fyrsta jarðsjárvinna gekk vel og mikið safnaðist af spennandi gögnum sem nú verður unnið frekar úr.

Í samvinnu við Flugbjörgunarsveitina á Hellu var einnig flogið með myndavélardróna yfir Oddastað í björtu veðri þann 4. ágúst sl. Þær myndir sem þar náðust eru geysilega gagnlegar til að greina garða og þústir, misfellur í landslagi og allskyns mynstur.

Það verður spennandi að vinna úr þessum gögnum á næstunni og skipuleggja frekari rannsóknarvinnu í Odda. Það er Oddafélagið sem stendur að þessari vinnu með tilstyrk frá Héraðsnefnd Rangæinga.

spot_img

MEST LESIÐ:

Sr. Geir og frú Dagný heiðruð í Reykholti

Sóknarnefnd og söfnuður Reykholtsprestakalls bauð þeim heiðurshjónum, sr. Geir Waage og frú Dagnýju Emilsdóttur, til hátíðardagskrár í Reykholti þar sem þeim var þakkað fyrir...

Fundur um endurheimt votlendis í Odda

Fundurinn er haldin af Landi og skógi í samstarfi við Oddafélagið og verður á Teams, miðvikudag 28. maí 2025 kl. 14:30-15:30.

Nýjar fréttir af Odda og Oddaverjum

Stórbók um sögu Odda og Oddaverja er væntanleg á árinu

Sæmundarstund föstudaginn 20. mars kl. 13:00

Boðið er til Sæmundarstundar sem fram fer föstudaginn 20. mars kl. 13:00 til 13:30, við styttuna af Sæmundi fróða fyrir framan aðalbyggingu Háskóla Íslands