HeimFréttir og greinarAðalfundur Oddafélagsins

Aðalfundur Oddafélagsins

verður haldinn í Ekru og á Teams 21. júní n.k. og hefst kl. 10:00.

Aðalfundur Oddafélagsins verður haldinn í Ekru* og á Teams 21. júní n.k. og hefst kl. 10:00.

Í boði verður að taka þátt í fundinum á staðnum en þeir sem vilja taka þátt í fjarfundi þurfa að senda póst á ritstjori@oddafelagid.is fyrir kl. 16:00 þann 20. júní og fá þá sendan hlekk inn á fundinn. Hefðbundin aðalfundarstörf.

DAGSKRÁ AÐALFUNDAR

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Reikningar félagsins.
  3. Umræður um skýrslu og reikninga og þeir bornir upp til samþykktar.
  4. Kosningar.
  5. Ákvörðun um árgjald.
  6. Önnur mál.
*Ekra (Langekra) er rétt suður af Oddastað. Beygt er inn á afleggjarann að Odda, en beygt til vinstri áður en komið er að Oddahlaði og ekið niður eftir veginum að Ekru. Það eru aðeins nokkrar mínútur frá því að beygt er af Odda-afleggjara og þar til komið er að Ekru.
Hér fyrir neðan er tengill á kort af já.is þar sem hægt er að sjá ökuleiðina (farðu inn á þessa síðu já.is og smelltu á „vegvísun“)
spot_img

MEST LESIÐ:

Drónaflug í Odda

Í samvinnu við Flugbjörgunarsveitina á Hellu var flogið með myndavélardróna yfir Oddastað þann 4. ágúst sl.

Óskabyrjun á Oddarannsókn

Miðvikudaginn 6. júní 2018 mætti Kristborg Þórsdóttir ásamt fólki sínu til að hefja fornleifarannsóknir í Odda með áherslu á Sæmundarhellana svokölluðu við Langekru.

Frétt Stöðvar 2 um opnun Oddabrúar

Hið forni höfuðstaður, Oddi á Rangárvöllum, er aftur kominn í alfaraleið með nýrri brú yfir Þverá, sem styttir verulega leiðina milli Rangárvalla og Vestur-Landeyja.

Fornleifarannsókn hafin í Odda að nýju

Frétt Morgunblaðsins og viðtal við Kristborgu Þórsdóttur, fornleifafræðing.