HeimFréttir og greinarBók á ensku um ritmenningu Oddaverja á miðöldum

Bók á ensku um ritmenningu Oddaverja á miðöldum

Glæsileg bók um ritmenningu og völd Oddaverja á miðöldum. Bókaútgáfan Brill í Hollandi býður 35% afslátt til þeirra sem panta bókina í forsölu.

Bókaútgáfan Brill í Hollandi var stofnuð árið 1683 og er því ein elsta og virtasta útgáfa fræðirita í heiminum. Það er mikill heiður fyrir Oddafélagið og fyrir fræðimenn Oddarannsóknarinnar að útgáfan ákveði að gefi út þetta vandaða og veglega rit um sögu Odda á miðöldum.

Helgi Þorláksson, prófessor emeritus í sagnfræði við Háskóla Íslands er ritstjóri bókarinnar í samstarfi við Meghan Korten. Helgi var jafnframt formaður Oddarannsóknarinnar, en auk hans sátu í stjórn Ármann Jakobsson, Egill Erlendsson, Kristborg Þórsdóttir og Sverrir Jakobsson. Um vinnubrögð við þessa bók segir Helgi m.a.: „Við skildum ritmenningu víðum skilningi, tókum með forsendur eins og handritagerð og alla aðra þætti sem mótuðu ritmenningu, ekki aðeins læsi og kunnáttu í skrift heldur þann erlenda lærdóm sem tengdist ritmenningunni og mótaði það sem fært var í letur. Rætt var um hvert menn 12. aldar  sóttu þekkingu til að koma slíku efni í texta sem ritaður var á skinn. Sæmundur fróði skipti hér höfuðmáli, hann sótti þekkingu til útlanda og mótaði upphaf ritmenningar á Íslandi.“

Bókin samanstendur af sautján greinum sem falla í sex efnisflokka: 1. Church Estates and Chieftains, 2. Oddi: Environment and Farming: The operation of an Estate Farm, 3. Textual Culture and Foreign Impact, 4. Literate Education and Power through Learning and Texts, 5. Two-Oddi Men Mirrored in Written Sources, 6. Oddi: Benefice, Church-Buildings, and Learned Priests.

Greinarhöfundar eru: Chris Callow, Helgi Þorláksson, Viðar Pálsson, Egill Erlendsson, Tómas Aron Þórarinsson, Kristborg Þórsdóttir, Árni Freyr Magnússon, Sigurlaugur Ingólfsson, Miguel Andrade, Richard North, Ármann Jakobsson, Sverrir Jakobsson, Oddur Pálsson, Auður Magnúsdóttir, Halldís Ármannsdóttir, Gunnar Harðarson, Guðrún Harðardóttir.

Hér er því glæsilegt og vandað rit um niðurstöður Oddarannsóknarinnar er laut að ritmenningu í Odda á miðöldum, efnahagslegum undirstöðum hennar og þeim völdum sem ritmenningin veitti þeim sem stýrðu henni.

Forlagið Brill býður 35% afslátt til þeirra sem kjósa að kaupa ritið í forsölu. Vinsamlega sendið póst á netfangið htho@hi.is

 

spot_img

MEST LESIÐ:

Bók á ensku um ritmenningu Oddaverja á miðöldum

Glæsileg bók um ritmenningu og völd Oddaverja á miðöldum.

Hinn þjóðfræðilegi Sæmundur og vald þekkingarinnar

Erindi Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur á Oddastefnu 30. maí

Oddastefna í Gunnarsholti 30. maí kl. 13

Lok Oddarannsóknarinnar eftir fimm ára starf verða kynnt og flutt verða atriði úr óperunni Sæmundur fróði með Animiato óperuhópnum.

Tilboðsverð á bók um Oddarannsóknina

Fjöldi nýrra fræðigreina um Odda og Oddaverja á miðöldum.