HeimFréttir og greinarSæmundarstund föstudaginn 20. mars kl. 13:00

Sæmundarstund föstudaginn 20. mars kl. 13:00

Að viðburðinum standa Oddafélagið, Stúdentaráð og skrifstofa rektors Háskóla Íslands.

Boðið er til Sæmundarstundar sem fram fer föstudaginn 20. mars kl. 13:00 til 13:30, við styttuna af Sæmundi fróða. Að viðburðinum standa Oddafélagið, Stúdentaráð og skrifstofa rektors Háskóla Íslands.

Sæmundarstund var fyrst haldin á aldarafmæli Háskóla Íslands árið 2011 að frumkvæði Oddafélagsins, sem er félag áhugamanna um endurreisn fræðaseturs að Odda á Rangárvöllum þar sem Sæmundur fróði bjó. Stundin hefur verið haldin árlega síðan, jafnan á degi sem næst vorjafndægri.

Þar er lærdómsmannsins og þjóðsagnapersónunnar Sæmundar fróða Sigfússonar minnst en hann var uppi á 11. og 12. öld. Sæmundur fór utan til náms og nam m.a. við skóla í Evrópu áður en hann sneri aftur til Íslands og gerðist prestur að Odda á Rangárvöllum.

Líkt og fyrri ár fer Sæmundarstund fram við styttuna af Sæmundi á selnum, sem stendur í Skeifunni fyrir framan Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Styttuna gerði Ásmundur Sveinsson og vísar hún til frægrar þjóðsögu af viðureign Sæmundar við kölska en samkvæmt þjóðsögunni flutti hann Sæmund heim til Íslands í selslíki.

Viðri illa, færist Sæmundarstund inn í anddyri Aðalbyggingar.

Dagskrá

Kl. 13:00 – 13:30

  1. Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, flytur ávarp.
  1. Þór Jakobsson, fyrrverandi formaður Oddafélagsins, greinir stuttlega frá sögu og tilgangi Sæmundarstundar.
  1. Ágúst Sigurðsson, formaður Oddafélagsins, flytur ávarp.
  2. Arent Orri J. Claessen, forseti Stúdentaráðs, flytur ávarp.
  3. Sæmundarstund slitið.

Boðið er upp á kaffiveitingar í Bókastofu Aðalbyggingar að loknum viðburði.

spot_img

MEST LESIÐ:

Sr. Geir og frú Dagný heiðruð í Reykholti

Sóknarnefnd og söfnuður Reykholtsprestakalls bauð þeim heiðurshjónum, sr. Geir Waage og frú Dagnýju Emilsdóttur, til hátíðardagskrár í Reykholti þar sem þeim var þakkað fyrir...

Nýjar fréttir af Odda og Oddaverjum

Stórbók um sögu Odda og Oddaverja er væntanleg á árinu