Ef þú vilt styrkja félagið til góðra verka þá erum við ákaflega þakklát fyrir það.
Félagið stendur að fornleifarannsóknum í Odda, er að byggja upp aðstöðu fyrir
vísindafólk í Ekru, rekur Fornleifaskóla unga fólksins og er að undirbúa uppbyggingu
menningar- og fræðaseturs, Sæmundarstofu, í Odda. Nánari upplýsingar um
verkefni félagsins má finna hér á síðunni undir: VERKEFNIN OKKAR.
Þú getur líka valið að styrkja eitt þessara verkefna sérstaklega og biðjum við þig þá
að tilgreina það í pósti til formanns stjórnar.
Ef þú óskar nafnleyndar biðjum við þig að taka það fram í pósti til formanns stjórnar.
Minningargjafir til félagsins birtum við hér á heimasíðunni með þeim hætti sem
aðstandendur óska eftir.
Færslur um styrki og minningargjafir
Smelltu á hnappinn til að sjá allar færslur um styrki og minningargjafir til félagsins.